tjellinn.bloggar.is
Blogg blogg blogg og mér leiðist.Magnús Þór Jónsson
Held að tíminn sé kominn á smá blogg hérna. Er ekkert búinn að vera neitt virkur en ég efast líka um að fólk hafi séð þetta hjá mér. Enda ekkert auglýst.eins og flestir vita þá er ég orðinn sjómaður og hef farið viku út á sjó. En svo lennti ég í því að skipið bilaði og er núna í slippi og ég veit ekki neitt hvenar ég fer á sjó aftur. Ég veit allavegna að ég fer með þegar það fer aftur út. Þetta átti NB bara að vera smá millilöndun. Átti að vera farinn út aftur síðasta fimtudag um 14 leitið.
Dagurinn var frekar súr fyrir utan það að ég fór með ragga og prófaði einn draumabíl á einni bílasölu. Nissan skyline!! Stýrið vitlausu meginn und alles. Yndislegur bíll. Alveg suddalega flott hljóð þegar maður fer með hann upp í snúning og sleppir kúplingu og skiptir svo um og heldur áfram. Ágætis kraftur í honum. Annars hefur dagurinn bara verið hjá mér svona: MSN, matur, sígó, hanga í tölvu, hanga í tölvu, hlusta á tónlist, sígó, osf. You get the point.
Kvöldið/nóttin var svo þannig að ég fór út í sígó og hitti littlu ingu og hún endaði með að draga mig með að rölta eitthvað út á stöð í hafnarfirði. Hvernig ég endaði þar veit ég ekki og fólk sem þekkir mig vel munu vera hissa á því að ég nennti að labba svona langt.

Svo enduðum við bara með að spjalla saman og gunni hringdi og joinaði okkur með nyja hundinum sínum. Kl 3 var ég svo farinn að átta mig á því að ég var þreyttur og labbaði inn. Rataði svo upp í rúm og endaði með að blogga hérna eftir að ég sá að ég var allt í einu ekki nefndur sem eigandi blog.central.is/smapikz.
En já bíll á leiðini, Stefni á því að kaupa mér volvo 740. Bara eitthvað til að skemmta mér á og mökka inni í. Það kemur allt þegar ég fæ útborgað frá sjónum.
Takk fyrir mig
- Tjéllinn
Til minningar John Joseph CramerMagnús Þór Jónsson
7.3.1959 - 7.5.2006Hérna sjáiði mann fræku minnar. Hann er ekki lengur með okkur í dag þar sem hann lést í mótorhjólaslysi rétt hjá laxá í Kjós þann 7. maí.
Ég var það óheppinn að vera um borð á brettingi og heyrði um þetta í útvarpinu. Þessi maður var yndislegur. Hafði alltaf góðan húmor og ég man ekki eftir því að hann hafi verið fúll, pirraður eða reiður nokkurntíman þegar ég hef hitt hann. Mest sé ég sammt eftir því hvað ég hef hitt hann lítið undanfarin 2 ár. Og svo núna er hann dáinn.
Hann var stór og mikill maður, 2 metrar á hæð.
Djöfullinn. Ég man ekkert hvað meira e´g get sagt um hann nema það að ég sakna þess að hafa hann ekki lengur í lífinu og hvað mig langaði til að hitta hann oftar.
Hvíl í friði John minn.